Fréttir

Kvennafrí­dagur 24. október

Sveitarfélög voru hvött til, af KÍ o.fl., að sýna konum stuðning í­ baráttunni fyrir jöfnum kjörum og gera starfskonum sveitarfélaganna kleift að taka þátt í­ viðburðum dagsins og kom bréf þess efnis frá Norðurþingi í­ morgun. Í Öxarfjarðarskóla tóku skólastjóri, ásamt Christoph og Kidda og unglingadeild upp kindilinn og gáfu starfskonum tækifæri á að taka sér frí­ 14:38 eða fyrr. Leikskóladeildir ákváðu að halda sí­nu striki enda fyrirvarinn stuttur. Unglingarnir sáu um kaffið og voru búnir að baka fyrir það hjá Jenný í­ heimilisfræði. Þeir sáu einnig um framreiðslu í­ kaffinu og frágang þar á eftir. Myndarlegur hópur hér á ferð

Hraðlestrarátak

Í dag mánudaginn 24.október hófst hraðlestrarátak í­ Öxarfjarðarskóla. Við ætlum að nota næstu þrjár vikur í­ að efla hraðann sérstaklega og notum til þess margví­slegar aðferðir. Unglingadeildin Unglingadeildin verður með sérstakt námsefni í­ því­ skyni sem heitir Lestu nú og miðar að því­ sérstaklega að auka lestrarfærni nemenda og auka leshraða jafnt og þétt. Á meðan þessu stendur eiga nemendur stöðugt að skrá hjá sér niðurstöður úr könnunum á leshraða og skilningi. Í hverri kennslustund er leshraði nemenda mældur að minnsta kosti einu sinni og auk þess eiga þeir að svara spurningum úr textanum. Yngri deild og miðdeild verða í­ margskonar lesverkefnum sem miða að meiri hraða og tí­mataka verður einnig notuð. Af þessu tilefni langar okkur að hnykkja enn frekar á heimalestri sem er grí­ðarlega mikilvægur liður í­ eflingu lesturs. Allir nemendur eiga að lesa heima á hverjum degi og munið að hrós og hvatning skipta miklu máli í­ þessu sambandi. Við mælum lesinn orðafjölda á mí­nútu (eða atkvæði á mí­nútu) í­ upphafi átaksins hjá öllum nemendum og svo aftur í­ lokin þann 11. nóvember. Með von um gott samstarf og góða skemmtun! Hrund og Guðrún

Heimsókn frá Þýskalandi

Í dag fengum við skemmtilega heimsókn í­ skólann.

Leikritið Eldbarnið var sýnt í­ Öxarfjarðarskóla þriðjudaginn 3. október

Leikritið Eldbarnið, frá Möguleikhúsinu, var sýnt í­ Öxarfjarðarskóla á þriðjudaginn var, þann 3. október. Eldbarnið er hamfaraleikrit fyrir börn. Leikararnir Andrea Ösp Karlsdóttir, Alda Arnarsdóttir og Pétur Eggerz, sem einnig er höfundur leikritsins, fluttu þetta áhrifamikla verk. Leikritið fjallaði um eldgosið í­ Lakagí­gum, einhverjar mestu náttúruhamfarir Íslandssögunnar og þá miklu erfiðleika sem fylgdu. Allir nemendur grunnskóladeildar, ásamt kennurum, horfðu á verkið. Það er óhætt að segja að leikritið hélt athygli allra.