Fréttir

Ný heimasí­ða

Nú hefur Öxarfjarðarskóli tekið í notkun nýja heimasíðu og jafnframt verður hætt að uppfæra síðuna á skólatorginu. Síðan er enn í vinnslu og eru allar ábendingar um það sem betur mætti fara því vel þegnar.

Byrjun skólastarfs

Skólastarfið hefur farið vel af stað og koma nemendur vel stemmdir til leiks. Í dag var fyrsti dagur sundúthalds þar sem allur skólinn kom saman í Lundi. Til stóð að fara með nemendur í náttúruskoðun og þematengd verkefni í þjóðgarðinn í þessari viku en vegna rigningarspár var ákveðið að fresta ferðunum fram yfir helgi og sjá hvort veðurguðirnir verði okkur hliðhollari þá.

Skólabyrjun

Þessa vikuna er undirbúningur í fullum gangi hjá starfsfólki skólans svo hægt verða að taka á móti nemendum. Skólasetning verður í skólahúsinu á Kópaskeri fimmtudaginn 24. ágúst kl. 17:30 en kennsla hefst mánudaginn 28. ágúst.

Skólinn tekur til starfa á ný

Eftir mjög skemmtilega og fræðandi Svíþjóðarferð, sem stór hluti starfsfólks skólans fór í núna í byrjun ágúst, var fyrsti kennarafundur vetrarins haldinn í skólahúsinu á Kópaskeri þann 18. ágúst. Þar voru lagðar línur að undirbúningsdögum komandi viku.

Árshátí­ð Öxarfjarðarskóla

Árshátíð Öxarfjarðarskóla var haldin í gærkvöldi.

Afmælishátí­ð Stóru upplestrarkeppninar

Einar Ólason á 10 ára afmælishátið Stóru upplestrarkeppninnar.

Stóra upplestarkeppnin

Lokahátíð stóru upplestrarkeppninnar var haldin á Raufarhöfn í gær.

Tónlist fyrir alla - Syngjandi skóli

Í dag kom loksins að því að tónlistarmennirnir frá verkefninu Tónlist fyrir alla komu í heimsókn til okkar.

Upplestrarkeppni

Í gær fór fram undankeppni innan skólans um hverjir yrðu fulltrúar Öxarfjarðarskóla á lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar sem haldin verður í Hnitbjörgum á Raufarhöfn þann 9. mars næstkomandi kl. 14:00.

Öxarfjarðarskóli fær peningagjöf

Á litlu jólunum í Lundi þann 20. des. mætti hreppsnefnd Kelduneshrepps á staðinn og færði Lundardeildinni eina milljón króna að gjöf.