Í gær var haldinn fundur með foreldrum og starfsfólki í Öxarfjarðarskóla.
Þetta var góður fundur og ánægjulegt að sjá hve margir foreldrar sáu sér fært að mæta. Ýmislegt var á
dagskrá og margt rætt, en þetta var kærkomið tækifæri fyrir foreldra að spyrja út í starfið hjá okkur í vetur. Nýtt
starfsfólk var kynnt og einnig þær breytingar og hugmyndir sem upp hafa komið varðandi heildstæðan skóla sem farið verður af stað með
í byrjun október.
Samkvæmt nýjum grunnskólalögum eru foreldra- og kennararáð lögð niður, en í þeirra stað á að stofna
skólaráð og var gengið frá því á fundinum. Það verður komið nánar að því hér neðar.
Einnig
þurfti að stofna nýtt foreldrafélag þar sem skólarnir hér eru orðnar aðskildar stofnanir. Ákveðið var að hafa svipað
fyrirkomulag og byrjað var með í fyrra, að í 5 manna stjórn yrðu fulltrúar fyrir hvert stig skólans, einn fyrir leikskólastig, einn fyrir
yngsta stig, einn fyrir miðstig og tveir fyrir unglingastig, þ.e. einn fyrir 8. og 9. bekk og einn frá foreldrum 10. bekkinga. Nöfn fulltrúanna verða birt hér
á síðunni um leið og allir sem tilnefndir voru hafa gefið samþykki sitt fyrir setu í stjórninni.
Erla Óskars reiddi fram dýrindis
veitingar í hléi en að því loknu bauðst foreldrum að hitta kennara í þeirra stofum til frekara spjalls.
Var ekki annað að sjá en almenn ánægja væri meðal foreldra og starfsfólks með fundinn og er athugandi að gefa foreldrum oftar færi á
að hittast sem hópur með umsjónarkennurum sinna barna.
Skólaráð
Samkvæmt nýjum grunnskólalögum hefur foreldra- og kennararáð verið lagt niður en í stað þess skal kosið Skólaráð
við alla skóla.
Í grunnskólalögunum segir m.a.
“Við grunnskóla skal starfa skólaráð sem er samráðsvettvangur skólastjóra og skólasamfélags um skólahald.
Skólaráð tekur þátt í stefnumörkun fyrir skólann og mótun sérkenna hans. Skólaráð fjallar um
skólanámskrá skólans, árlega starfsáætlun, rekstraráætlun og aðrar áætlanir um skólastarfið.
Skólaráð skal fá til umsagnar áætlanir um fyrirhugaðar meiri háttar breytingar á skólahaldi og starfsemi skóla áður en
endanleg ákvörðun um þær er tekin. Skólaráð fylgist almennt með öryggi, aðbúnaði og almennri velferð nemenda.
Skólanefnd, sbr. 6. gr., getur með samþykki sveitarstjórnar falið skólaráðum einstakra skóla ákveðin verkefni þessu til
viðbótar.
Skólaráð skal skipað níu einstaklingum til tveggja ára í senn, tveimur fulltrúum kennara ásamt einum fulltrúa annars starfsfólks
í viðkomandi skóla, tveimur fulltrúum nemenda og tveimur fulltrúum foreldra, auk skólastjóra sem stýrir starfi skólaráðs og ber
ábyrgð á stofnun þess. Skólaráð velur að auki einn fulltrúa grenndarsamfélags til að sitja í ráðinu eða
viðbótarfulltrúa úr hópi foreldra. Auk þess skal skólastjóri boða til sameiginlegs fundar skólaráðs og stjórnar
nemendafélags að lágmarki einu sinni á ári.” Fulltrúar nemenda skulu eiga kost á að taka þátt í umræðum
skólaráðs þegar fjallað er um velferðar-
og hagsmunamál
nemenda.
Í skólaráði eru:
Guðrún Sigríður Kristjánsdóttir, skólastjóri
Hrund Ásgeirsdóttir, kennari og staðgengill skólastjóra
Guðrún Margrét Einarsdóttir, sérkennari
Elisabeth Hauge, deildarstjóri leikskóla
Ágústa Ágústsdóttir, Garði Kelduhverfi
Geir Bjarnason, Kópaskeri
Guðríður Baldvinsdóttir, Lóni Kelduhverfi