27.02.2014
Ég minni aftur á breytta dagsetningu árshátíðar. Verið er að æfa Dýrin í Hálsaskógi eftir Thorbjörn Egner. Vegna ákveðinna aðstæðna, hjá bæði nemendum og starfsfólki, verður árshátíðin okkar flutt til um einn dag. Árshátíðin verður fimmtudaginn 10. apríl í stað þess 11. Vonandi kemur það ekki að sök.
Kveðja,
GSK
27.02.2014
Sund byrjar ekki fyrr en 17. mars
Conny stefnir á að byrja sundkennslu grunnskólanemenda miðvikudaginn 17. mars og ætlar Friðgeir að vera okkur innanhandar í þeim efnum. Því miður getum við ekki byrjað fyrr vegna ákveðinna aðstæðna. Við stefnum einnig á, í samráði við Kristínu, að leikskólabörn komist einnig í sund, en reynum að velja stað og stund upp á veður og hita að gera.
Kveðja,
GSK
27.02.2014
Stefnt er á að sýningin fari að rúlla um kl. 10:30 og standi til kl. 12:00. Foreldrar, afar, ömmur og áhugasamir eru velkomnir á sýninguna. Kaffi verður á könnunni. Það á að sýna skartgripi, heimasmíðuð hljóðfæri, þæfða hluti, baðsölt og varasalva og flytja frumsamið tónverk. Myndir munu rúlla á skjávarpa af þeirri vinnu og þeim verkefnum sem fóru fram. Einnig af fjallgöngu, glímu og jóga.
Skemmtilegri og lærdómsríkri þemaviku er að nú ljúka. í gær, miðvikudag, komu þeir feðgar og glímukóngar, Eyþór Pétursson og Einar frá Baldursheimi og kenndu nemendum undirstöðuatriði í glímu. Tekist var á eftir settum reglum og höfðu allir gaman af. Gaman að nemendur skyldu hafa kost á því að kynna sér þessa gömlu og þjóðlegu íþrótt hjá þessum sérfræðingum. Það er mikilvægt að þekkja sínar rætur þá stendur maður betur í fæturna. Það hefur verið gleði í húsinu og nemendur, allir, staðið sig með prýði. Undirrituð er þakklát fyrir þá ósérhlífnu vinnu sem bæði starfsfólk, nemendur og einstakir foreldrar og fl., hafa lagt í þetta verkefni. Við eigum hæfileikríkt fólk hér áhverju strái.
Ágústa Ágústdóttir var með jóga fyrir yngsta stig í gær, miðvikudag og mæltist það vel fyrir hjá börnunum og eins og ég hef áður sagt er ekki svo lítils virði að kunna þá tækni á þessum tímum hraða og mikils áreitis sem börn í dag fara ekki varhluta af. Um kvöldið fór svo stór hópur starfsmanna á námskeið í jóga hjá Ágústu. Í dag, fimmtudag verður annar tími í jóga fyrir yngsta stig.
Unglingadeildin gekk á Þverárhyrnu á þriðjudaginn og héldu þau Kiddi og Anka utan um hópinn. Ferðin var krefjandi og veður ekki eins og best varð á kosið, snjókoma og lítið skyggni og reyndi á nemendur en þeir báru sig vel þó sumir væru orðnir þreyttir í lokin. Búnaður ,sem mikilvægt er að kunna að fara með, var reyndur s.s. ísaxir, sigbúnaður o.fl. Það má segja að á ferð sem þessari lærir þú að takast á við sjálfan þig og erfiðar aðstæður án þess gefast upp. Skólastjóri heilsaði upp á hópinn daginn eftir og var hann ánægður, bar sig vel og tilbúinn að fara aftur. Einn nemendi sagði að þetta hefði verið hressandi og síðar um daginn glímdi þessi hópur af krafti og eldstu börn leikskólans fylgdustmeð. Flottur og jákvæður hópur sem ég hitti í smíðastofu.
Kveðja,
GSK
27.02.2014
Hér koma nánari upplýsingar frá Conny varðandi íþróttabúðir, í Lundi 28. febrúar.
Fótboltaþjálfari frá Húsavík kemur. Conny hvetur foreldra og forráðamenn til að hafa samband ef einhverjar spurningar vakna.
25.02.2014
Einhver tími fer í leikæfingar, í þemaviku, enda stutt í árshátíð. verið er að æfa Dýrin í Hálsaskógi eftir Thorbjörn Egner. Vegna ákveðinna aðstæðna, hjá bæði nemendum og starfsfólki, verður árshátíðin okkar flutt til um einn dag. Árshátíðin verður fimmtudaginn 10. apríl í stað þess 11. Vonandi kemur það ekki að sök.
Kveðja,
GSK
25.02.2014
Conny stefnir á að byrja sundkennslu grunnskólanemenda miðvikudaginn 12. mars og ætlar Friðgeir að vera okkur innanhandar í þeim efnum. Við stefnum einnig á, í samráði við Kristínu, að leikskólabörn komist einnig í sund, en reynum að velja stað og stund upp á veður og hita að gera.
Kveðja,
GSK
25.02.2014
Þemavika 24.-28. febrúar
Þessa dagana stendur yfir þemavika. Hrund sendi heim breyttar stundarskrár fyrir helgi sem skiluðu sér af einhverjum ástæðum gegnum kerfið en ættu að hafa skila sér núna.
Búið var að kanna hug nemenda í þessum efnum og óskuðu þeir eftir að áhersla yrði lög á verklegar greinar og íþróttir og höfum við lagt okkur fram um að koma til móts við óskir þeirra.
Í dag, 24. febrúar voru nemendur m.a. að þæfa ull og til urðu selir, uglur, fuglar apar o.fl. eins og fyrir töfra á tiltölulega stuttum tíma. Það voru þær Anka, Aðalbjörg og Jenny sem héldu utan um það starf. Einnig verða gerðir skartgripir m.a. úr perlum og roði undir stjórn þeirra stallna.
Í kjallaranum eru að verða heimatilbúin hljóðfæri sem unnin eru undir stjórn Vigdísar, Fljóðu og Gullu.
Gugga, Guðríður Baldvinsdóttir, kom og kenndi börnunum að búa til baðsalt, varasalva og fleira. Við eigum hæfileikafólk á hverju strái ef við bara lítum í kringum okkur þarf ekki alltaf að leita langt yfir skammt.
Fjallganga verður á morgun þriðjudaginn 25. febrúar hjá unglingadeild, mikilvægt að nemendur komi vel búnir. Gengið verður á Þverárhyrnu og munu þau Kiddi og Anka halda utan um hópinn með aðstoð Haffa á Gilsbakka.
Framundan er ýmislegt spennandi. Íþróttir verða á sínum stað á stundarskrá og á miðvikudaginn kemur Eyþór Pétursson frá Baldursheimi ásamt syni sínum og ætlar að kenna nemendum íslenska glímu. Gaman að nemendur skuli hafa kost á því að kynna sér þessa gömlu og þjóðlegur íþrótt hjá þessum sérfræðingum.
Jóga - Ágústa Ágústdóttir, jógakennari, kemur með námskeið inn á yngsta stig á miðvikudag og fimmtudag. Ekki svo lítils virði að kunna þá tækni á þessum tímum hraða og mikils áreitis sem börn í dag fara ekki varhluta af.
Þeir félagar Kiddi og Tryggvi verða með málmsmíði og grunnatriði rafsuðu fyrir unglingastig á miðvikudag. Í málmsmíði verða m.a. gerðir skartgripir úr tini.
Á fimmtudag fær miðdeild að prófa að gera skartgripi úr tini og verða það Kiddi og Aðalbjörg sem halda utan um það starf. Einnig verða gerðir skartgripir m.
Kveðja,
GSK
25.02.2014
Fimmtudaginn 13. febrúar var mikið um að vera í Öxarfjarðarskóla. Okkur til mikillar ánægju var Grunnskólinn á Raufarhöfn með okkur þennan dag. Bæði starfsfólk og leik- og grunnskólanemendur. Dagurinn var einstaklega ánægjulegur. Nemendur voru saman í kennslustundum en einnig var brotin upp stundarskrá og nemendum gafst tækifæri til leikja, spjalls o. fl.
Um kvöldið, kl. 18:00 var svo forkeppni Nótunnar.
Kveðja,
GSK
25.02.2014
10. bekk var boðið í heimsókn til Húsavíkur
Dóra, skólameistari FSH á Húsavík bauð 10. bekk Öxarfjarðarskóla og 10. bekk Grunnskólans á Raufarhöfn í heimsókn okkur að kostnaðarlausu, fimmtudaginn 6. febrúar. Bæði akstur og matur verður í boði FSH. Nemendur fóru úr Lundi kl. 9:00 og komu heim fyrir kl. 15:00 og komu því í tæka tíð fyrir skólaakstur.
Vel var tekið á móti nemendum og þeim kynntur Framhaldsskólinn á Húsavík.
Kveðja,
GSK
25.02.2014
Það er mikilvægt að brjóta upp venjubundna stundaskrá af og til og lífsleikni í sjálfu sér að takast á við breyttar aðstæður.
Föstudaginn 24. janúar var stórskemmtilegur rugludagur í Öxarfjarðarskóla. Öllu var snúið á hvolf fyrstu tvo tíma dagsins. Skólabílstjóranir byrjuðu á að ruglast í upphafi dags og tóku rangar stefnur en yngstu nemendurnir lögðu sig fram um að leiðrétta þá og allir skiluðu sér í skólann.
Kennarar mættu í úthverfum fötum, smóking af afa eða vinnufötum eiginmannsins, sumir höfðu gleymt íslenskunni og kenndu á sænsku og útlistuðu fyrir okkur kosti Svíþjóðar með miklum tilþrifum. Skólabílstjórarnir villtust inn í kennslustofur, lásu fyrir börnin og kenndu þeim að takast á í sjómanni. Einstakir kennarar héldu að þeir væru nemendur og höguðu sér sem slíkir. Sumir nemendanna virtust hafa gleymt að fara á fætur og voru í náttfötum eða höfðu ruglast á og farið í föt af öðrum eða farið í fötin í öfugri röð.
Nemendur sem annars töluðu íslensku, áttu það til að tala sænsku, spænsku eða taílensku. Elstu nemendur fóru í leikskólann og yngri nemendur aðstoðuðu eldri nemendur, leikskólabörn fóru í kennslustofu unglinganna ásamt nemendum í miðdeild.
Í matsal var ráðskonan með öfuga svuntu og búin að rugla allri sætaskipan en nemendur í hlutverkaleik létu það ekki rugla sig og gerðu morgunverði góð skil.
Það var setið upp á borðum, legið á gólfinu, hlustað á sögur, tekist var á í sjómanni, málin voru rædd frá ótal vinklum og mikið var hlegið. Þetta var sko alvöru rugludagur sem tókst með eindæmum vel, ekki bara orðin tóm. Við vorum meira og minna öll í hlutverkaleik og í hópnum leynast greinilega margir góðir leikarar.
Í nýrri Aðalnámskrá Mennta- og menningarmálaráðuneytis, almenna hluta, erum við minnt á að ýta ekki leiknum til hliðar. Að mikilvægt sé að hafa leikinn með í grunnskólastarfi og að leikur sé nemendum á öllum aldri sjálfsprottin leið til náms og þroska.
Höfum leikinn með, það eflir bæði huga og hönd.
Kveðja,
GSK