Fréttir

Svakalega lestrarkeppnin - 6.sæti!

Þá er svakalegu lestrarkeppninni 2026 lokið. Í ár kepptu 108 skólar um allt land og lásu eins og þau gátu dagana 15. september til 6. október. Að þessu sinni hafnaði Öxarfjarðarskóli í 6. sæti og hífðum við okkur upp um eitt sæti frá í fyrra. Lesnar voru 978 mínútur á nemanda í 1.-7.b. Við erum auðvitað ákaflega ánægð og stolt með okkar nemendur! Á landinu tóku alls 22.372 nemendur þátt í 1. - 7. bekk þátt í keppninni og lesnar voru alls 12.393.550 mínútur!

Foreldrafundur

Síðastliðinn fimmtudag 1.október var haldinn foreldrafundur í skólanum. Að þessu sinni var ákveðið að breyta til og fá aðila frá samtökunum Heimili og skóla til að leiða vinnustofu með foreldrum. Byrjað var á að kjósa í stjórn foreldrafélagsins en allir stjórnarmenn gáfu kost á sér aftur. Skólastjóri fór yfir helstu niðurstöður Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar sem lögð var fyrir nemendur 4. -10.b á vordögum en síðan tók Guðbjörg frá Heimili og skóla við keflinu og leiddi umræður.