20.10.2026
Þá er svakalegu lestrarkeppninni 2026 lokið. Í ár kepptu 108 skólar um allt land og lásu eins og þau gátu dagana 15. september til 6. október.
Að þessu sinni hafnaði Öxarfjarðarskóli í 6. sæti og hífðum við okkur upp um eitt sæti frá í fyrra. Lesnar voru 978 mínútur á nemanda í 1.-7.b. Við erum auðvitað ákaflega ánægð og stolt með okkar nemendur!
Á landinu tóku alls 22.372 nemendur þátt í 1. - 7. bekk þátt í keppninni og lesnar voru alls 12.393.550 mínútur!
05.10.2026
Síðastliðinn fimmtudag 1.október var haldinn foreldrafundur í skólanum. Að þessu sinni var ákveðið að breyta til og fá aðila frá samtökunum Heimili og skóla til að leiða vinnustofu með foreldrum. Byrjað var á að kjósa í stjórn foreldrafélagsins en allir stjórnarmenn gáfu kost á sér aftur. Skólastjóri fór yfir helstu niðurstöður Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar sem lögð var fyrir nemendur 4. -10.b á vordögum en síðan tók Guðbjörg frá Heimili og skóla við keflinu og leiddi umræður.
20.09.2026
Nemendur luku í síðustu viku við að leggja 1000 kubba púsluspil sem sýnir kort af heiminum. Það tók tvær vikur að klára verkið og nokkrir nemendur úr unglingadeild og miðdeild tóku þátt. Landafræði er þema í unglingadeild um þessar mundir, en nemendur unnu að púslinu í frímínútum. Gaman er að segja frá þessu, enda er þetta eitthvað sem nemendur gera í stað þess að vera í símanum — þeir dunda sér rólega við að púsla, og nemendur úr miðdeild fá um leið tækifæri til að vera með eldri félögum sínum.
16.09.2026
Í dag 16. september er dagur íslenskrar náttúru og af því tilefni var farið í vettvangsferð í Þjóðgarðinn til að fræðast og upplifa.
Áður en ferðin var farin fengum við heimsókn frá landvörðum sem komu til okkar í skólann í gær og svöruðu spurningum nemenda um störf sín o.fl.
07.09.2026
Annað árið í röð eigum við fulltrúa frá Öxarfjarðarskóla sem fær smásöguna sína útgefna í bókinni Risastórar smásögur en það er verkefni á vegum Sagna sem er verðlaunahátíð barna. Markmið verkefnisins er að auka áhuga barna á sögugerð á fjölbreyttu formi og sýna börnum að hverju hugmyndir þeirra geta orðið.
Það var Heiðný Jónasdóttir nemandi í 5.bekk sem færði skólanum eintak af bókinni að gjöf í morgun. Hún var meðal þeirra 17 nemenda á landinu sem komust áfram í keppninni og fengu sögurnar sínar útgefnar. Sagan hennar Heiðnýjar fjallar um hyssuna Eflingu sem eignast folaldið sem fékk nafnið Happadís eftir að hafa lent í hremmingum en komist vel frá þeim.
Við erum auðvitað stolt af okkar nemanda og óskum Heiðnýju til innilega hamingju með söguna sína um leið og við hvetjum alla nemendur til að nota hugmyndaflugið til að skapa sem mest af nýjum sögum.
25.08.2026
Skólasetning fór fram föstudaginn 21. ágúst sl. og markar hún upphaf nýs og viðburðaríks skólaárs hjá okkur.
Alls stunda 40 nemendur nám við skólann í vetur og til viðbótar 17 leikskólabörn í samreknum leik-og grunnskóla. Til að styðja við þennan frábæra hóp barna starfa hér 16 samhentir og áhugasamir starfsmenn. Við hlökkum mikið til samstarfsins og erum full tilhlökkunar að takast á við skemmtileg verkefni saman. Megi þessi vetur færa okkur öllum gleði, lærdóm og góð samskipti.
20.08.2026
Föstudaginn 21.ágúst kl. 16:00 verður Öxarfjarðarskóli settur. Nemendur mæta með foreldrum sínum, fá stundatöflur og hitta umsjónarkennara.
Skólinn hefst svo skv stundatöflu mánudaginn 24. ágúst kl. 8:20.
Matseðill fyrir ágústmánuð er kominn á heimasíðuna.
29.05.2026
Föstudaginn 22.maí var Öxarfjarðarskóla slitið þetta skólaárið. Þá voru 3 nemendur úr 10. bekk útskrifaðir ásamt 5 börnum úr Lundarkoti sem hefja nám við skólann í haust. Öll fengu þau birkitré að skilnaði.
Tveir starfsmenn voru kvaddir að þessu sinni; þær Hulda Hörn Karlsdóttir sem starfað hefur við skólann sem matráður síðastliðin 18 ár og Rakel Anna Boulter sem gegndi stöðu umsjónarkennara á mið- og unglingastigi undanfarin 2 ár. Þeim voru þökkuð störf sín við skólann og óskað velfarnaðar á nýjum vettvangi.
18.05.2026
Nemendur yngri deildar fengu að koma með hjólin sín í skólann í dag til að láta lögregluna yfirfara þau og einnig hjálmana. Hjólin stóðust skoðun og fengu nemendur skoðunarmiða á hjólin sín því til staðfestingar.
Lögreglan var svo með umferðarfræðslu fyrir mið- og unglingastig.
15.05.2026
Nemendur frá Grunnskóla Þórshafnar komu ásamt skólastjóra í heimsókn í morgun til að tefla við jafnaldra á miðstigi. Gaman að tengja skólana með þessum hætti og mynda ný vinasambönd.