Litlu jól og föndurdagur
Í gær var föndurdagur
í báðum deildum þar sem nemendur og kennarar föndruðu jólaföndur. Einnig kom þó nokkuð af foreldrum í heimsókn. Í
dag voru svo litlu jólin haldin hátíðleg eftir hádegi í báðum deildum skólans.
Í Lundi borðuðu starfsfólk, nemendur og leikskólabörn saman hátíðarmat og á eftir var ýmislegt fert til skemmtunar, s.s. pakkapúkk, sungin jólalög og gengið í kringum jólatré. Var mikil sönggleði hjá nemendum en Sigurður Tryggvason lék undir á harmonikkuna.
Á Kópaskeri fluttu nemendur 5.-7. bekkjar frumsamið leikrit á ensku sem þau höfðu sjálf samið og dönskunemendur sögðu nokkra brandara á dönsku. Foreldrum var boðið að koma og horfa á atriðin og komu þó nokkrir og höfðu gaman af. Síðan voru sungin nokkur jólalög við undirleik Björns Leifssonar. Að lokum tók við hefðbundin dagskrá, jólasaga, pakkapúkk og kökuveisla og bíó.
Leikskólabörn á Kópaskeri héldu sín litlu jól í morgun. Þau voru svo heppin að til þeirra villtust tveir jólasveinar,
all úfnir, en þeir höfðu ætlað í jólaklippingu til Rannveigar. Þeir gerðu sér ekki grein fyrir því að hún var
flutt svo þeir komu við í skólanum og heilsuðu upp á leikskólabörnin. Þessir sveinar hétu Hurðaaskellir
og Skyrgámur og þeir gáfu börnunum mandarínur og saltkringlur og súkkulaðibita í poka. Á leiðinni út
heilsuðu þeir upp á grunnskólabörnin og færðu þeim epli.
Nú eru
árlegir jólatónleikar Tónlistarskóla Öxarfjarðarhéraðs að skella á. Nemendur og kennarar skólans munu flytja alls konar
tónlist, en auðvitað verður sérstök áherla lögð á jólalög frá öllum tímum.
Verkalýðsfélag
Húsavíkur bauð leikskólabörnum Norðurþings í ferðalag í Dimmuborgir þann 13. des. Það voru börn fædd 2001 og 2002
sem stóð til boða að fara. Ferðin heppnaðist mjög vel. Gunna Magga fór með börnin úr Krílakoti til Húsavíkur þar
sem rútur tóku við börnunum og keyrðu upp í Mývatnssveit.
Leiksýning
Allir eru velkomnir