Fréttir

Árshátíð Öxarfjarðarskóla verður haldin 27.nóvember

Yngri deild sýnir stytta útgáfu af Ávaxtakörfunni en mið- og unglingastig sýna Sjóræninga Karíbahafsins. Hlökkum til að sjá ykkur sem flest!

Dagur íslenskrar tungu

Í gær minntumst við Jónasar Hallgrímssonar skálds og náttúrufræðings sem fæddist einmitt þann 16.nóvember 1806 og sá dagur hefur verið valinn sem dagur íslenskrar tungu. Nemendur söfnuðust saman í gryfju og sungu "Á íslensku má alltaf finna svar" og síðan var ákveðið að halda það út einn dag að nota ekki enskuslettur sem reyndist ungum sem öldnum misauðvelt! Orð dagsins var valið - seigla-