29.05.2026
Föstudaginn 22.maí var Öxarfjarðarskóla slitið þetta skólaárið. Þá voru 3 nemendur úr 10. bekk útskrifaðir ásamt 5 börnum úr Lundarkoti sem hefja nám við skólann í haust. Öll fengu þau birkitré að skilnaði.
Tveir starfsmenn voru kvaddir að þessu sinni; þær Hulda Hörn Karlsdóttir sem starfað hefur við skólann sem matráður síðastliðin 18 ár og Rakel Anna Boulter sem gegndi stöðu umsjónarkennara á mið- og unglingastigi undanfarin 2 ár. Þeim voru þökkuð störf sín við skólann og óskað velfarnaðar á nýjum vettvangi.
18.05.2026
Nemendur yngri deildar fengu að koma með hjólin sín í skólann í dag til að láta lögregluna yfirfara þau og einnig hjálmana. Hjólin stóðust skoðun og fengu nemendur skoðunarmiða á hjólin sín því til staðfestingar.
Lögreglan var svo með umferðarfræðslu fyrir mið- og unglingastig.
15.05.2026
Nemendur frá Grunnskóla Þórshafnar komu ásamt skólastjóra í heimsókn í morgun til að tefla við jafnaldra á miðstigi. Gaman að tengja skólana með þessum hætti og mynda ný vinasambönd.
06.05.2026
Í vikunni kom fulltrúi frá Kiwanisklúbbnum á Húsavík og afhenti öllum nemendum 1. bekkjar reiðhjólahjálma að gjöf. Nemendur voru að vonum sáttir með nýju hjálmana sína.