Fréttir

Samfélagið í nærmynd

Yngsta stig Öxarfjarðarskóla hefur undanfarnar vikur verið að vinna í þema sem nefnist “Samfélagið í nærmynd”. Þar er aðaláherslan á að nemendur kynnist sinni heimabyggð og þekki sögu og einkenni hennar. Það er ýmislegt sem nemendur hafa fengist við, t.d. semja spurningar fyrir góða gesti og spyrja þá spjörunum úr, sett saman nafnlausa könnun um heimilisverk, farið í vettvangsferð um samfélagið, kortlagt fyrirtæki, sveitabæi og íbúðarhús, spáð í grunnþjónustu, velt fyrir sér jafnrétti, kynjahlutverkum og margt fleira. Við viljum þakka fyrir frábærar móttökur í fyrirtækjunum sem heimsótt voru sem og öllum þeim sem lögðu okkur lið í þessu verkefni.

Þorrablót Öxarfjarðarskóla

Þorrablót skólans var haldið 29. janúar sl. Góð mæting var hjá foreldrum og systkinum og stóðu nemendur sig vel með skemmtiatriði og veislustjórn. Heiðný og Valur voru kynnar kvöldsins en Sigurður matráður sá um matinn og spilaði einnig undir fjöldasöng. Yngri deildin söng nýjan texta við lagið "Róa" sem var framlag Íslands í fyrra í Eurovision og mið-og unglingadeild voru með nokkur myndbönd sem innihéldu m.a. kennaragrín og fleira. Myndböndin eru komin hér á heimasíðuna undir flipanum *Nemendur* > Myndbönd

Skapandi skrif

Í síðustu viku kom Þorgrímur Þráinsson rithöfundur til okkar með skapandi skrif. Mið- og unglingadeild tóku þátt í verkefninu sem miðar að því að nemendur eru látnir fá nokkrar kveikjur til að skrifa út frá. Þorgrímur fékk góðar viðtökur og áfram verður haldið með verkefnið innan skólans. Allir nemendur fengu að lokum áritaðar bækur eftir Þorgrím að gjöf.

Heiðný áfram í smásagnasamkeppi!

Annað árið í röð erum við stolt af því að eiga nemanda sem tók þátt í smásagnasamkeppni Risastórra smásagna. Að þessu sinni er það Heiðný  í 4. bekk sem sendi inn smásöguna sína "Hryssan og folaldið" inn í smásagnasamkeppnina og var fallega sagan hennar valin áfram. Heiðný mun fá tíma með ritstjóra næstu helgi til að fara yfir söguna og betrumbæta ef þarf áður en hún verður gefin út. Bókmenntaborg UNESCO lætur prenta bókina handa verðlaunahöfunum sem allir fá eitt eintak fyrir sjálfa sig og annað handa skólunum.  Sagan hennar var lesin upp í gryfju og fékk hún afar góðar viðtökur!  Við óskum Heiðnýju innilega til hamingju með árangurinn og óskum henni góðs gengis áfram!

Félagslegir töfrar

Dr. Viðar Halldórsson hélt fyrirlestur fyrir mið- og unglingastig í dag sem bar yfirskriftina "Félagslegir töfrar". Fyrirlesturinn fjallaði um hvernig félagslegir töfrar myndast í samskiptum fólks og stuðla að vellíðan og árangri einstaklinga og hópa. Heimsóknin var í boði HSÞ, Kvenfélagasambands Suður Þingeyjarsýslu og Búnaðarsambands Suður Þingeyjarsýslu.