Til foreldra í Norðurþingi og nágrenni. Hverni sköpum við börnunum okkar bestu þroskaskilyrði fyrir mál og tal.
14.09.2016
Var beðin um að koma þessum upplýsingum á framfæri. Kv, GSK.
Spennandi fundur fyrir foreldra barna í leikskóla og 1- 4. bekk grunnskóla
Fundurinn verður haldinn í Samkomusal Borgarhólsskóla mánudaginn 19. september kl. 17.00
Bryndís Guðmundsdóttir talmeinafræðingur fræðir um málþroska og framburð og mikilvægi örvunar á þessu sviði.
Hvernig gefa foreldrar börnum forskot á málþroska og tjáningu sem síðar leggur grunn að lestrarfærni og námi?
Sérstaklega verður kynnt aðferðafræði og rannsóknir er tengjast „Lærum og leikum með hljóðin“.
Dæmi sýnd um notkun smáforrita í kennslu og leik heima fyrir.
Efnið hentar mjög vel foreldrum barna í leikskóla og yngri aldurshópum í skóla. Sérstök tilboð verða á efni Lærum og leikum með hljóðin, fyrir áhugasama. Sjá nánar á laerumogleikum.is
Hvernig sköpum við börnum okkar bestu þroskaskilyrði fyrir mál og tal?
Skólaþjónusta Norðurþings - Aðgangur er ókeypis.