Öskudagur á morgun 14. febrúar
13.02.2018
Kæru foreldrar/forráðamenn
Öskudagur á morgun, miðvikudaginn 14. febrúar.
Á morgun er Öskudagur og foreldrafélagið stendur fyrir skemmtun fyrir nemendur. Nemendur ganga milli fyrirtækja í skrautlegum búningum og syngja, og þar eru þær Eyrún Ösp og Hildur í forsvari. Hildur að sjálfsögðu með gítarinn í för. 😊
Að því loknu verður farið í íþróttahús í leiki og notalegheit. Tryggvi Hrafn stendur fyrir því að allt sé klárt þar svo að hægt sé að slá köttinn úr tunnunni.
Leikskólabörn eru velkomin með en foreldrar/foreldri beðnir að fylgja þeim ef nokkur kostur er.
Lagt verður af stað frá Lundi kl 12:30 og er Eyrún Ösp búin að semja við skólabílstjóra um þá ferð, en foreldrar eru beðnir að sækja börn sín kl 16:00 í íþróttahúsið á Kópaskeri.
Fyrir hönd foreldrafélagsins,
Guðrún S. K.