14.05.2014
Leikskólastarf verður með eðlilegum hætti á morgun og skólaakstur verður á venjubundnum tíma fyrir leikskólabörnin.
14.05.2014
Á morgun fimmtudaginn 15. maí lítur fyrir að grunnskólakennarar fari í verkfall og að enginn kennsla verði á morgun í grunnskóladeild.
Ef svo ólíklega vill til að samið verði fyrir lokafrest í kvöld verður skólahald með eðlilegum hætti á morgun. Verður þá brugðist við og send sms skilaboð á hvert heimili í gegnum mentor og mun Kristján Ingi sjá um þau.
Kv,
Guðrún S. K.
09.05.2014
Mánudaginn 5. maí kom Grímur Kárason, slökkvuliðstjóri Norðurþings til okkar, fundaði með starfsfólki og fór yfir rýmingaráætlun með okkur. Einnig æfði hann rýmingu með nemendum og starfsfólki og ræddi við nemendur á eftir. Kærkomin heimsókn og mikilvæg.
09.05.2014
Miðvikudaginn 30. apríl kom Grunnskólinn á Svalbarði í heimsókn og átti með okkur góðan dag og voru nemendur ánægðir með daginn að sögn skólastjóra, Daníel. Allir fóru með smíðagripi með sér eftir samstarf við smíðakennara, Tryggva.
23.04.2014
Önnur sýning á Dýrunum í Hálsaskógi verður sunnudaginn 27. apríl kl. 15:00 í Pakkhúsinu á Kópaskeri (íþróttahúsinu).
Þessi sýning er sérstaklega tímasett með barnafjölskyldur í huga. Við hvetjum barnafjölskyldur til þess að nota tækifærið. Nánari upplýsingar um sýninguna er að finn hér aðeins aftar.
GSK
23.04.2014
Sumardagurinn fyrsti, 24. apríl
Nemendur unglingadeildar Öxarfjarðarskóla, verða með flóamarkað, kökubasar og vöfflukaffi á sumardaginn fyrsta 24. apríl n.k. í íþróttahúsinu á Kópaskeri frá kl. 14:00- 17:00.
Nú er um að gera að taka til í geymslunni og fataskápnum og athuga hvort ekki þarf að losa sig við eitthvað. Það sem er einum rusl er öðrum gull. Þeir sem telja sig hafa eitthvað sem þeir vilja gefa til unglingadeildar eins og t.d. föt, skó, skíði, skauta, hillur, skrautmuni, blóm, eða hvað eina sem ykkur dettur í hug að hægt væri að selja á flóamarkaði, geta komið með vörur til unglinganna á sumardaginn fyrsta milli kl. 10:00-12:00, f.h. í íþróttahúsið. Allur ágóði rennur í ferðasjóð unglingadeildar.
Unglingarnir munu svo sjá um að baka gómsætar kökur sem verða settar á kökubasarinn þennan sama dag og einnig geta gestir og gangandi keypt sér kaffi og nýbakaðar vöfflur.
GSK
23.04.2014
Dýrin í Hálsaskógi:
Fimmtudagskvöldið 10. apríl, kl. 19:30 í Skúlagarði, steig stoltur hópur nemenda á svið með eitt stórt verkefni, Dýrin í Hálsaskógi eftir Thorbjörn Egner og var það Hrund Ásgeirsdóttir sem leikstýrði verkinu. Allir nemendur grunnskólans tóku þátt í þessu verkefni ásamt elstu nemendum leikskólans. Í hléi var foreldrafélagið með kaffisölu. Biskup Íslands, Agnes M. Sigurðardóttir, var á ferð um Norðurland og sat þessa sýningu með okkur ásamt biskupsritara, Þorvaldi Víðissyni og voru þau mjög ánægð með sýninguna. það var gaman að þau skyldu gefa sér tíma til að vera með okkur þessa kvöldstund. Víðtæk samvinna skólasamfélagsins, milli nemenda, starfsfólks Tónlistarskólans og Öxarfjarðarskóla, foreldra og annarra velunnara, sem gerði okkur kleyft að gera þessa sýningu svo glæsilega vakti athygli biskups og biskupsritara. Í hátíðarræðu sinni, 20 apríl s.l. í Dómkirkjunni, talar biskup m.a. um árshátíð Öxarfjarðarskóla og það að allir nemendur hafi tekið þátt og að foreldrar og fl. spilað í hljómsveitinni. Biskup talaði einnig um kraftmikið fólk á norðausturlandi og vitnar í verk Thorbjörns Egner: Dýrin komu sér saman um að öll dýrin í skóginum ættu að vera vinir. Þetta samkomulag úr leikritinu þekkjum við og ljóst er að það heldur ekki nema allir samþykki það og leggi sig fram um að láta það ganga eftir. Ég held að við getum tekið undir þessi orð biskups.
11.04.2014
Kæru foreldrar/forráðamenn
Árshátíð:
Ég þakka nemendum, starfsfólki Öxarfjarðarskóla, starfsfólki Tónlistarskólans, foreldrum og öðrum velunnurum fyrir eftirminnilega og skemmtilega samveru í gær á árshátíð. Ég vil sérstaklega þakka Axel, staðarhaldara í Skúlagarði, fyrir hans þátt, en hann hefur sýnt okkur mikla velvild og umburðarlyndi þann tíma sem við höfum verið að æfa og á sýningu. Það voru margar hendur sem tóku sig saman og gerðu okkur kleyft að halda glæsilega sýningu á Dýrunum í Hálsaskógi.
Skarpur:
Ef einhverjir hafa aðgang að Skarp, þá er grein um skólann og sýninguna okkar þar. Eins var ég beðin að vekja athygli á því að Einar Magnús (Maggi) er búinn að setja margar myndir inn á Kópaskerssíðuna.
Páskafrí, skólaakstur og leikskóli:
Meðan á páskafríi grunnskólanemenda stendur er ekki skólaakstur og og þurfa foreldrar því að gera aðrar ráðstafanir varðandi það að koma börnum sínum í leikskólann. Akstur hefst og leikskólasel tekur aftur til starfa að loknu páskafríi þann 22. apríl á venjubundnum tímum.
Gleðilega páska,
Guðrún S. K.
09.04.2014
Við minnum á árshátíð skólans sem verður fimmtudaginn 10. apríl og hefst kl. 19:30.
08.04.2014
Fimmtudagskvöldið 10. apríl, kl. 19:30 í Skúlagarði, stígur stoltur hópur nemenda í Öxarfjarðarskóla á svið með eitt stórt verkefni, Dýrin í Hálsaskógi eftir Thorbjörn Egner. Allir nemendur grunnskólans taka þátt í þessu verkefni ásamt elstu nemendum leikskólans. Í hléi verður foreldrafélagið með kaffisölu.
Önnur sýning verður sunnudaginn 27. apríl kl. 15:00. Við hvetjum fólk til að koma með börnin á þessa sýningu sem er sett upp sérstaklega til að koma til móts við barnafjölskyldur.
Inn á sýninguna kostar kr. 2.000 fyrir fullorðna, kr. 1.000 fyrir börn á grunnskólaaldri. í“keypis verður fyrir börn á leikskólaaldri.
Kveðja, Guðrún S. K.