01.03.2019
Tónleikar Tónlistarskólans verða þriðjudaginn 12. mars næstkomandi kl 17:30.
The music school will have it´s concert on the 12th of mars (Tuesday) 17:30.
Tónleikar Tónlistarskólans verða næstkomandi þriðjudag, 12. mars, í Lundi kl 17:30.
Nánari upplýsingar síðar.
26.02.2019
Nemandi úr Öxarfjarðarskóla, Dagbjört Nótt bar sigur úr bítum á Tónkvíslinni 2019.
Tónkvíslin 2019 var haldin þann 23. febrúar síðast liðinn og var það hún Dagbjört okkar Nótt sem kom, sá og sigraði Tónkvíslina í ár með laginu: Take me to church eftir Hozier. Til hamingu Dagbjört, við erum öll stolt af þér 😊
Allt frá árinu 2006 hefur Nemendafélag Framhaldsskólans á Laugum staðið fyrir Tónkvíslinni, einum glæsilegasta tónlistarviðburði Norðurlands eystra, ef ekki landsins í heild. Þó Tónkvíslin hafi komið til sem framhaldsskóla-söngkeppni hefur hún þróast út í stærri viðburð og væri í dag mun sambærilegri Söngvakeppni Sjónvarpsins. Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson - tónlistarstjóri Menningarfélags Akureyrar - lýsti Tónkvíslinni þannig að öll umgjörð hennar hefði verið metnaðarfyllri en hjá Söngvakeppni Sjónvarpsins þegar hann kom sem dómari á Tónkvíslina árið 2016.
21.02.2019
Unglingastigið er á Þeistareykjum ásamt þeim Kidda, Christoph og Vigdísi. Þau lögðu af stað í gær og gistu í nótt í skálanum á Þeistareykjum. Þungfært var uppeftir en hópurinn naut aðstoðar Björgunarsveitarinnar Garðars á Húsavík, sem ætlar einnig að lóðsa þau niðureftir. Ekki amalegt að fá björgunarsveitirnar til liðs við sig og margt af þeim hægt að læra. Björgunarsveitarbíll björgunarsveitarinnar okkar hér, Núpa, er einnig með í för. Undirituð heyrði í hópnum nú fyrir hádegi og var hann þá á leið í Togarahelli, sem er viðamikill hellir þar í grennd. Svona ferð er ögrandi og reynir á þolrifin en skilur yfirleitt eftir sig sigurtilfinningu. Þetta gat ég! Hér til hliðar er mynd af glaðbeittum hóp við skálann á Þeistareykjum.
17.02.2019
Nemendur fengu í þessa sinn tækifæri á að fá að koma með eigin hugmyndir um hvað þá langaði að gera, og litast þemavikan af hugmyndum þeirra, hvað þá langaði að skapa. Við reyndum að koma til móts við þeirra óskir eins og hægt er.
Hér er stiklað á því helsta sem verður í gangi þessa viku:
Það verður boðið upp á tungumálakennslu og fengu nemendur að velja á milli fimm tungumála.
Við fáum einnig inn leiðbeinendur í íþróttir sem munu æfa með nemendum handbolta og fóbolta. Eins mun verða boðið upp á jóga þessa viku, ekki veitir af í hraða og áreiti nútímans að læra að grípa til þeirra verkfæra sem felast í því að stunda íhugun.
Unglingastigið stefnir á að fara í fjallgöngu á miðvikudaginn og ætlar að gista eina nótt í skála á Þeistareyki. Gengið verður um svæðið á fimmtudaginn og hugsanlega skoðaður hellir, þar í grennd, ef hægt er. Kiddi, Christoph og Vigdís munu halda utan um hópinn. Mikilvægt er að huga að góðum útivistarfatnaði í tíma, fyrir þetta ferðalag.
Það verður einngi boðið upp á önnur verkleg verkefni; tækni lego, hanna bíl og strawbees. https://strawbees.com/ . Einstaka nemendur ætla að shanna og sauma á sig flíkur.
Hluti nemenda ætlar að hanna og skapa samfélag, nokkrir ætla að skrifa leikrit og enn aðrir að gera myndasögur.
Skákmót varður haldið í vikunni og munu bæði nemendur og kennarar taka þátt. Við byrjum vikuna á skákkennslu fyrir nemendur og starfsfólk og munu nokkrir nemedum kenna okkur hinum. Ef allt gengur upp munu úrslit verða ljós föstudaginn 22. febrúar. Föstudaginn 22. febrúar kl. 11.00, verður afrakstur vikunnar sýndur í gryfju og eru allir velkomnir að koma og skoða uppskeru vikunnar með okkur. Vonandi sjá einhver ykkar sér fært að kíkja til okkar.
13.02.2019
Á morgun, fimmtudaginn 14. febrúar kl 19:30 verður unglingastigið með félagsvist í Lundi.
Við minnum á félagsvistina sem unglingastigið verður með í Lundi á morgun kl 19:30.
Eigum skemmtilega kvöldstund með ungmennunum okkar og styrkjum um leið ferðasjóð nemenda. Aðgangseyrir er kr 1.500 - kaffi og meðlæti er innifalið.
11.02.2019
Í dag 11. febrúar er árlegur dagur íslenska táknmálsins. Mennta- og menningarrnálaráðuneytið hvetur skóla og aðrar stofnanir, sem og landsmenn alla, til að huga að því að nota 11. febrúar, eða dagana þar í kring, til að kynna íslenskt táknmál sérstaklega. Íslenskt táknmál er eina hefðbundna minnihlutamálið hér á landi og er fyrsta mál um 200 slendinga. Enn fleiri nýta sér íslenskt táknmál í daglegu lífi og starfi.
Öxarfjarðarskóli hafði daginn í heiðri og minnti nemendur á þetta mikilvæga mál. Á myndinni sjást nemendur og starfsfólk klappa fyrir nemendum, á táknmáli, eftir að þeir höfðu kynnt nokkur hugtök á táknmáli.
08.02.2019
Það hefur verið kínverskur blær á heimastofu yngsta stigs og miðrými í Öxarfjarðarskóla í tilefni kínverskra áramóta 5. febrúar. Í heimastofu og miðrými hanga uppi kínversk listaverk og kínverskar skreytingar. Yngsta stigið hefur, á undanförnum dögum, verið að kynna sér Kína og kínverska menningu undir handleiðslu Jennyar og Vigdísar.
Nemendur bjuggu til listaverk og skreytingar, spiluðu kínversk spil, dönsuðu kínverskan dans með tilheyrandi borðum, sem þeir sýndu okkur hinum. Einnig fengu nemendur að spreyta sig á því að borða með prjónum. Stórskemmtilegt að fá að fylgjast með þessu verkefni.
07.02.2019
Kæru foreldrar, forráðamenn og starfsfólk.
Um leið og Menntamálstofnun óskar okkur öllum til hamingju með dag leikskólans, sem var í gær miðvikudaginn 6. febrúar. Sendir hún frá sér eftirfarandi upplýsingar:
Menntamálastofnun vinnur að eflingu læsis í landinu í tengslum við þjóðarsáttmála um læsi. Þar spila leikskólar stórt hlutverk því þar er lagður mikilvægur grunnur að læsi. Málþroskinn vegur þar þyngst og er eitt mikilvægasta verkfærið.
Í tilefni af degi leikskólans gefur Menntamálastofnun út tvö myndbönd,Orðaforði og Læsisráð https://mms.is/myndbond , sem innihalda viðtöl við fagfólk og foreldra um mikilvægi þess að efla orðaforða og málþroska barna. Myndböndin nýtast bæði starfsfólki leikskóla svo og foreldrum og öðrum sem eiga í samvistum við börn. Þá gefur Menntamálastofnun út í formi talglæra, góð ráð um hvernig hægt er að nýta lestur á árangursríkan hátt.
Menntamálastofnun bindur vonir við að bæði myndböndin og talglærurnar nýtist starfsfólki leikskóla og þeir deili þeim áfram til foreldra svo allir geti lagt sitt af mörkum til að efla málþroska og grunnþætti læsis hjá sínum börnum.
01.02.2019
Það er erilsamt hjá unglingastiginu okkar þessa dagana.
Í dag er unglingastigið okkar á ferðinni og kynnir sér atvinnulíf og skóla á Akureyri.
Hér eru áætlaðar tímasetningar, sem mögulega eitthvað riðlast en undirrituð heyrði frá þeim kl 16:00 og þau voru að leggja af stað frá Akureyri og hafði gengið vel hjá þeim.
8:20 Morgunmatur í Lundi
8:40 Brottför úr Lundi
11:00 Starfamessa í HA
11:50 Kynningarferð í MA
13:00 Kynningarferð í VMA
14:00 Kynning á heimavistinni (óljós tímasetning, förum beint á vistina eftir VMA)
14:30 Matur, pítsa á Sprettinum (gæti riðlast eitthvað, fer eftir hvenær heimsóknin á vistina er búin.)
Heimferð yrði svo strax að loknum matnum.
Hópurinn gæti verið kominn í Lund upp úr 18:00. Nemendum er skilað við á afleggjara á leiðinni og á Kópasker.
Rúnar á Hóli keyrir Lundur-Akureyri-Lundur.
31.01.2019
Um leið og við óskum öllum Kvenfélagskonum til hamingju með afmælið á morgun viljum við nota tækifærið og þakka fyrir þann hlýhug og stuðning sem Kvenfélögin þrjú hér á svæðinu, Kvenfélagið Stjarnan, Kvenfélag Öxarfjarðar og Kvenfélag Kelduhverfnis, hafa sýnt Öxarfjarðarskóla í gegnum árin. Sá stuðningur hefur gert okkur ýmislegt kleyft sem annars hefði erfit verið að koma á. Kærar þakkir.