02.09.2024
Samkvæmt aðalnámskrá grunnskóla skal þess gætt að jafnvægi ríki milli bóklegra og list-og verkgreina og ekki halli á verklegt nám. Þrátt fyrir smæð skólans getum við boðið upp á býsna fjölbreytt úrval af valgreinum fyrir mið-og unglingastig sem eru á stundaskrá tvisvar í viku.
25.08.2024
Öxarfjarðarskóli var settur sl. þriðjudag 20.ágúst. Í ár verða nemendur alls 61 í samreknum leik- og grunnskóla - þar af 38 grunnskólabörn.
01.07.2024
Í gær opnaði sýningin Eldur, ís og mjúkur mosi í Gljúfrastofu.
Á sýningunni eru verk nemenda í Öxarfjarðarskóla sem voru hluti af sýningunni Eldur, ís og mjúkur mosi en það var samstarfsverkefni Vatnajökulsþjóðgarðs, Náttúruminjasafns Íslands, grunn- og leikskóla í nágrenni þjóðgarðsins, og breiðs hóps hönnuða og listafólks í heimabyggð skólanna. Jenny Please vann verkið með nemendum frá 1.-10. bekk. í Öxarfjarðarskóla
11.06.2024
Innra matsskýrsla hefur verið unnin fyrir skólaárið 2023-2024 og var til umfjöllunar í Fjölskylduráði Norðurþings 11.júní.
31.05.2024
Við leitum eftir áhugasömum kennara til starfa með okkur í teymi á mið- og unglingastigi frá og með næsta hausti!
28.05.2024
Skólaslit fóru fram síðastliðinn föstudag, 24. maí. Tveir nemendur 10.bekkjar útskrifuðust og einn starfsmaður kvaddur.
21.05.2024
Jón Emil Christophsson náði 6. sæti af 2246 nemendum sem tóku pátt í 8. bekk. Þetta er annað árið í röð þar sem við erum með nema meðal efstu 10 en Björn Ófeigur hafnaði í 10. sæti í fyrra. Jón Emil náði 30 stig í úrslitum en sigurvegarinn fékk 36 stig.
Við erum að sjálfsögðu stolt af okkar manni og óskum honum innilega til hamingju með frábæran árangur!
14.05.2024
Búið er að setja inn myndbönd undir flipann *Nemendur* > myndbönd frá Vorgleði 2024 og eins kynningarefni nemenda frá samstarfsdegi skólanna frá 30.apríl sl.
13.05.2024
Í morgun var síðasti samsöngur skólaársins.
30.04.2024
Í dag fengum við góða gesti í heimsókn en það voru nemendur Grunnskóla Raufarhafnar sem kíktu til okkar ásamt starfsfólki.
Dagurinn var skipulagður sem uppbrotsdagur og talsvert var lagt upp með að hrista hópinn saman í leik og starfi.