20.04.2015
Unglingadeild Öxarfjarðarskóla ætla að bjóða sumarið velkomið og vera með með sumarkaffi í Pakkhúsinu á Kópaskeri þann 23. apríl milli kl. 13 og 17. Unglingarnir ætla að vera með vöfflukaffi, kökubasar, tombólu og sölu á klósettpappir, lakkrís o.fl.
Einnig verður Rauði Krossinn með fatasölu á staðnum.
Vinsamlegast komið með pening, unglingadeildin er ekki með posa.
Sumarkveðja.
Unglingadeild Öxarfjarðarskóla og Þingeyjarsveitardeild Rauða kross Íslands.
07.04.2015
Sundið hefst að öllum líkindum ekki fyrr en í næstu viku. Laugin er ekki alveg tilbúin en verður það vonandi á mánudaginn kemur.
07.04.2015
Við stefnum á aukasýningu á Bugsie Malone, miðvikudaginn 15. apríl kl 19:30. Frumsýning tókst ákaflega vel og enginn svikinn af þessari glæsilegu sýningu.
Mig langar til þess að biðja ykkur að vera dugleg að auglýsa þessa aukasýningu á Bugsie Malone sem er svo sannarlega þess virði.
26.03.2015
Við óskum ykkur öllum gleðilegra páska, nemendum, starfsfólki, foreldrum og öðrum velunnurum.
Kærar kveðjur,
Guðrún S. K. og Hrund
26.03.2015
Sundkennsla:
Conny stefnir á að hefja sundkennslu strax eftir páska þ.e. þriðjudaginn 7.apríl og þess vegna viljum við minna á sundföt en líka íþróttaföt því stundum er laugin of köld og þá þarf breyta áætluninni.
Föstudagurinn 27.mars er síðasti kennsludagur fyrir páska og kennsla hefst aftur skv stundaskrá þriðjudaginn 7.apríl.
Endurskinsvesti:
Nú er ekki lengur þörf á endurskinsvestum og þær Fljóða og Gulla eru farnar að safna þeim saman. Einhver vesti leynast ennþá á einhverjum heimilum og langar okkur að fá þau sem fyrst í skólann.
26.03.2015
Aukasýning
Okkur langar mikið til að hafa aukasýningu og stefnum á miðvikudaginn 15.apríl í Skúlagarði kl. 19.30. Ég hef fengið grænt ljós frá Kidda og hljómsveitinni. Þá myndum við vera í Skúlagarði allan miðvikudaginn á æfingum og sýna síðan um kvöldið. Vonandi geta börnin ykkar tekið þátt í þessu en látið mig vita sem fyrst ef þið sjáið meinbugi á því. Við höfum ákveðið að fólk þurfi að panta miða fyrirfram til að vita hversu marga við fáum og viljum helst ekki sýna fyrir færri en 50 manns. Það væri ekki úr vegi að börnin litu endrum og sinnum í handritin sín (þau sem eru með stærstu hlutverkin) og rifja lögin upp :-)
Auglýsingar og nánari upplýsingar koma síðar þegar allt er á götu gert. Með kveðju frá Hrund.
26.03.2015
Leiklist er ein af mörgum kennsluaðferðum
Í nýlegu kynningarriti Menntamálaráðuneytis "Enn betri skóli" sem nýlega var dreift til almennings er lögð áhersla á listir; myndmennt, hannyrðir og tónmennt. Einnig er gert ráð fyrir, samkvæmt markmiðum, að nemendur tileinki sér grunntækni leiklistar og dans. Á þeim tíma sem sem fer í vinnu og æfingar fyrir metnaðarfulla sýningu, náum við að vinna að mörgum markmiðum Aðalnámskrár. Leiklist er kennsluaðferð. Hún hjálpar nemendum til þess að setja sig í spor annarra, eflir sjálfstraust og sjálfstæðar ákvarðanatökur. Leiklist kallar á samstarf, nemendur vinna saman í hópum og því þjálfar hún samskiptahæfni nemenda og eykur með þeim samkennd.
Í leiklist eru allir jafnir og rannsóknir benda til að í verkefni sem þessu auki nemendur orðaforða og aukinn orðaforði leiðir til aukins skilnings á námsefni.
Þegar foreldrar og kennarar eru spurðir um hvaða færni þeir telja mikilvægast að nemendur tileinki sér og fari með upp úr grunnskólanum? Þá eru það eftirfarandi gildi sem tróna yfirleitt efst: Sjálfstraust og félagsfærni. Fátt þjálfar betur þessa þætti en leiklist. Farsæl samskipti og örugg framkoma eru lykilatriði í öllu mannlegu atferli og gildir þá einu hvort um er að ræða börn eða fullorðið fólk. Margir kvíða því að þurfa að koma fram fyrir aðra og eiga erfitt með að tjá skoðanir sínar enda er leikni í slíkri framsögn ekki sjálfgefin, heldur krefst bæði mikillar og markvissrar þjálfunar. Það er því mikilvægt styrkja þessa þætti hjá nemendum og gefa þeim tækifæri til að stíga á svið og tjá sig með leiklist, upplestri eða söng.
Það gengur á ýmsu meðan á æfingum stendur og það reynir á, en að sýningu lokinni eru nemendur yfirleitt stoltir og reynslunni ríkari. Sterk sjálfsmynd og góð félagsfærni stuðlar að bættu skólastarfi, námsárangri og betri líðan barna/nemenda. Það er fleira nám en bóknám.
Við erum í samstarfi við Tónlistarskóla Húsavíkur og höfum notið liðsinnis Ástu Magnúsdóttur og Reynis Gunnarssonar við undirbúning þessa verks. Þá höfum við enn á ný fengið að njóta krafta meðlima hljómsveitarinnar Legó, þeirra Sigga, Haffa og Tryggva, sem spila undir á sýningunni ásamt, Önku og þeim Ástu og Reyni.
Heilmikil vinna liggur á bak við verk sem þetta og það eru flott börn og ungmenni sem þarna stíga á svið. Ég vil þakka öllum sem hafa komið að þessari vinnu á einn eða annan hátt; m.a. nemendum, starfsfólki, foreldrum og velunnurum. Það sýndi sig svo sannarlega að við eigum hæfileikafólk á hverju strái í undirbúningi verksins og er það ekkert sjálfgefið.
Guðrún Sigríður Kristjánsdóttir
skólastjóri, Öxarfjarðarskóla.
26.03.2015
Rugludagur
Í dag var rugludagur í skólanum, fram að morgunmat. Þá ruglast allt hjá okkur, bæði í leikskóladeild og grunnskóladeild. Starfsfólk skiptir um hlutverk sem og nemendur, þau stærri fara gjarnan inn á leikskóla og þau yngstu koma inn í grunnskólann og læra þar. Þetta var gert í fyrra fyrir alla og tókst svo skemmtilega að okkur langaði að prófa aftur
24.03.2015
Og árshátíðin okkar tókst svona skínandi vel, enn og aftur, enda ekki við öðru að búast þegar allt þetta hæfileikafólk tekur höndum saman og vinnur að því markmiði að búa til góða sýningu; nemendur, starfsfólk, foreldrar, afar og velunnendur m.a. kennarar tónlistarskólans.
Til hamingju öllsömul!
Hvort önnur sýning verður eftir páska á Bugsie Malone er ekki að fullu ákveðið. Kv,GSK
20.03.2015
Leikæfingar eru nú á lokametrunum fyrir árshátíð skólans á sunnudaginn. Eins og flestir vita stóð til að árshátíðin yrði í kvöld föstudag en vegna veikinda varð að aflýsa þeirri sýningu.