Fréttir

Starfsdagur í­ Öxarfjarðarskóla 3. október

Starfsdagur í­ grunnskóladeild föstudaginn 3. október næstkomandi Ég minni á starfsdag kennara samkvæmt skóladagatali þann 3. október næstkomandi. Þá er enginn skóli fyrir grunnskóladeild, þar af leiðandi enginn skólaakstur og foreldrar leikskólabarna þurfa að gera aðrar ráðstafanir. Leikskóladeildir, báðar, starfa samkvæmt venju þennan dag. Kveðja, GSK

Félagsstarf 8.-10. b. skólaárið 2014-15

Félagsstarf Á föstudaginn kemur, þann 3. október, hefst félagsstarf 8.-10. bekkjar sem verður í­ umsjá Connýar. Hér fyrir neðan eru upplýsingar (innihald) frá Conný sem hefur verið svo væn að leggja þessu mikilvæga starfi lið, einu sinni enn, og er það í­ samstarfi við tómstunda- og æskulýðssvið: kveðja, Guðrún S. K.

Skólasetning

Öxarfjarðarskóli var settur í­ dag klukkan 17. Í skólanum í­ vetur verða 33 nemendur við grunnskólann, 10 nemendur í­ leikskóladeild í­ Lundi og 2 nemendur til að byrja með í­ leikskóladeild á Kópaskeri.

Endurskinsvesti, sumarlokun o.fl.

Slysavarnafélagið Landsbjörg gefur endurskinsvesti, veisla leikskólabarna og eldri borgara og sumarlokun 11. júlí­ til 18. ágúst.

Skólaslit 2014

Skólaslit Öxarfjarðarskóla fóru fram í­ gær.

Kveðjuhóf Lisu McMaster miðvikudaginn 8. maí­

Miðvikudaginn 7. maí­ komu starfsmenn saman og kvöddu Lisu McMaster, tónlistarkennara með pomp og pragt og að sjálfsögðu var saminn bragur henni til heiðurs. Lisa er á leið heim til Bretlands að þessu skólaári loknu og munum við sakna hennar úr starfi með okkur. GSK

Skólaslit í­ Öxarfjarðarskóla fimmtudaginn 22. maí­ kl. 18:30

Kæru foreldrar/forráðamenn/starfsfólk og nemendur. Skólaslit Öxarfjarðarskóla eru í­ dag, fimmtudaginn 22. maí­ kl. 18:30 í­ Lundi. Boðið verður upp á kaffi og með því­ í­ lokin. Kærar kveðjur, Guðrún S. K.

Sí­ðustu tónleikar Tónlistarskólans á þessu skólaári

Sí­ðustu tónleikar Tónlistarskólans á þessu skólaári voru í­ kvöld og dagskrá fjölbreytt. Nemendur stóðu sig vel og við þökkum fyrir ánægjulega samveru og Tónlistarskóla Húsaví­kur fyrir gott samstarf í­ vetur. Kær kveðja, Guðrún S. K.

Leikskóladeild og akstur 15. maí­

Leikskólastarf verður með eðlilegum hætti á morgun og skólaakstur verður á venjubundnum tí­ma fyrir leikskólabörnin.

Það lí­tur út fyrir verkfall á morgun, fimmtudag 15. maí­ hjá grunnskólakennurum

Á morgun fimmtudaginn 15. maí­ lí­tur fyrir að grunnskólakennarar fari í­ verkfall og að enginn kennsla verði á morgun í­ grunnskóladeild. Ef svo ólí­klega vill til að samið verði fyrir lokafrest í­ kvöld verður skólahald með eðlilegum hætti á morgun. Verður þá brugðist við og send sms skilaboð á hvert heimili í­ gegnum mentor og mun Kristján Ingi sjá um þau. Kv, Guðrún S. K.